Spyrnir frá Grund II sem er búinn að vera keppnishestur Báru undan farin 3 ár skipti um eigendur á dögunum og er á leiðinni til Svíðþjóðar. Það er alltaf erfitt að selja hesta sem maður er búinn að vera með lengi og við eigum eftir að sakna þessa mikla snillings. En við óskum nýjum eigendum innilega til hamingju með gripinn.

Straumur frá Sörlatungu
Nú er sumarið að ganga í garð og hestamót nánast allar helgar, en við tókum þátt á Opnu Íþróttamóti Mána, Reykjarvíkurmeistaramóti og svo tók Bára þátt í Íþróttamóti Harðar. Árángurinn á fyrstu mótum sumarsins var nokkuð góður. Fyrst var það mótið í Mána en þar endaði Bára í öðru sæti í 4gang á Spyrni, og Kári fór með Spyrni í Töltið og endaði þriðji. Svo mætti Kári með nýjan hest í fjórgang en það er hann Straumur frá Sörlatungu sem hann er búinn að vera með í þjálfun í vetur fyrir þau Róbert Veigar Ketel og Ingu Dröfn Sváfnisdóttur. Það gekk vonum framar og þeir enduðu í þriðja sæti.
Svo var það Reykjarvíkurmeistaramótið, þar endaði Bára þriðja í fimmgang á Funa, og 7. í B-úrslitum í 4gang á Spyrni. Kári mætti einungis með Tón á mótið þar sem Straumur slasaðist á fæti og gat því ekki mætt til leiks. En Tónninn stóð sig vel eins og alltaf og endaði annar í Töltinu með 7,67 í einkunn en örfáum kommum ofar var Arna Ýr Guðnadóttir á Þrótti frá Fróni. Það er því nokkuð ljóst að þau munu slást um titlana í sumar.
Að lokum var það mótið í Herði en þar endaði Bára í öðru sæti í fimmgang og þriðja sæti í gæðingaskeiði á Funa.
Tónn heldur áfram að gera það gott í Meistaradeildinni í þetta skiptið var það Slaktaumatölt eða T2, þrátt fyrir að Tónn hafi aldrei áður tekið þátt í slíkri keppni áður var árangurinn frábær. Tónn og John enduðu í fjórða sæti með 7,68 út úr úrstlitum.
Nú er Tónn kominn í Hólaborg í tveggja vikna program til þess að breyta aðeins til fyrir hann enda er hann kominn í frábært form og það er einungis Mars. Það er óhætt að segja að sumarið verður afar spennandi.
Tónn okkar frá Melkoti lenti í örðu sæti í Tölti í Meistaradeildinni í fimmtudaginn síðasta. John Kristinn Sigurjónsson sýndi klárinn af stakri snilld sem skilaði honum 8,07 í einkunn útúr úrslitum. Klárinn er kominn í hörku form og verður gaman að sjá hvernig framhaldið verður.

Tónn, María og Marglytta
Nú erum við búnir að gefa öllum hrossum í okkar umsjá, ormalyf fyrir veturinn og það verður því ekki gefið aftur fyrr en í vor. En við gefum okkar hestum ormalyf tvisvar á ári, á haustin og svo á vorin. Þetta á við um hross sem að eru úti, þau hross sem við erum með inni yfir veturinn fá einnig ormalyf þegar þau koma á hús. Hrossin líta mjög vel út feit og flott, en nú fer að styttast í að við tökum keppnishrossin inn.

Ármót.is
Kári verður í Ármóti í vetur, ásamt John Kristni Sigurjónssyni og Hafliða Halldórssyni. En á Ármóti er ein besta aðstaða á landinu til þess að temja og þjálfa hross. Reiðhöll, glæsilegt hesthús, vatnsbretti og fleira. En Kári getur tekið að sér tvö hross í þjálfun í vetur frá öðrum og hægt er að hafa samband með tölvupósti, lerkiholt@gmail.com eða í síma 868-5661.
Kári back to Ármót. Kári will be at Ármót this winter, along with John Kristinn Sigurjónsson and Hafliði Halldórsson. At Ármót is one of the best training stations in Iceland. Big ridinghall, beautiful stable, water treadmill and more. Kári can take two horses from others in training this winter and u can contact by e-mail, lerkiholt@gmail.com or by phone - 003548685661.
Óli frá Feti, sem er búinn að vera keppnishestur Kára í fimmgang undanfarin 2 ár fékk nýja eigendur í vikunni. En nýjir eigendur eru þau Jara Guðnadóttir og Einar Sigurðsson. Við óskum þeim innilega til hamingju með gripinn og vonum að Óli eigi eftir að veita þeim jafn mikla ánægju og hann hefur veitt okkur.
Óli tók þátt í þrem mótum í fimmgangi á þessu ári; A-úrslit á Reykjarvíkurmeistaramóti, 1. sæti á Líflandsmóti og 1. sæti á Íþróttamóti Geysis.

Nóta frá Lerkiholti
Nú erum við loksins búnir ad uppfæra heimasíðuna og gefa henni nýtt og betra útlit, við ætlum ad reyna ad vera virkari ad setja inn fréttir og myndir.